Auglýsing

Ég get ekki átt samræður við neinn without speaking some English

22. september 2008 klukkan 15:36
Fyrst vil ég byrja á Nana mælir með:
Í þessu bloggi mæli ég með Liverpool borg.
Þetta er vanmetin borg sem er yndisleg á alla kanta! Menningin, stemmningin, fólkið, djammlífið, tískan og fótboltinn. Borgin hefur allt! Fyrir stuttu fór ég til Liverpool og svo til London. First of all var tískan svo miki flottari í Liverpool, allar stelpur flottar og í töff fötum en London var full af túristum og eitthvað too much.. 



Í Liverpool mæli ég með:
1. Að fara á Liverpool leik - stemmingin er ómetanleg!
2. Olive Press veitingarstaður í miðborginni. Dýr en rosalega kósý og með æði efirrétti
3. Albert Dock- labba um svæðið og skoða sig um. Frábært útsýni -MYNDIN AÐ OFAN
4. Crowne Plaza - geðveikt hótel á fullkomnum stað
5. Versla downtown því það eru ótrúlega flottar búðir og flestar á sama stað
6. Primark - ekki of troðin þarna miðað við í London. Og allt miki snyrtilegra.

En að öðru...Mikið hefur borið á því síðustu vikur og mánuði að ég geti hreinlega ekki skrifað eða talað án þess að nota heilu setningarnar á ensku.

Ég hafði aldrei tekið eftir þessu fyrr en Helena vinkona og Heiður fóru að benda mér á þetta. Ég trúði þeim ekki að ég væri virkilega að sletta svona rosalega mikilli ensku en þurfti að éta það ofan í mig þegar að ég skoðaði smsin sem höfðu farið á milli mín og Helenu.. Annað hvort var öll setningin á ensku eða amk hálf.. Og ef svo var ekki þá var alltaf eitt og eitt enskt orð inn á milli en aldrei full íslensk setning..



Upp á gamnið tók ég núna upp símann minn og ætlaði að skoða hvort ég væri búin að gera þetta núna nýlega.. Og neinei.. hér er eitt gott dæmi um sms frá Nönu.. sendi þetta á föstudaginn:

"Jamms, við verðum samt pottó komnar á undan ykkur þar sem að þið eruð að dræva úr Kef. En ég læt þig of course vita."

Annað dæmi úr msn samtali:

"Hafðu það gott tonight. See you tomorrow"

Heiður benti mér einnig á bulletin sem ég gerði á myspace í gær.. Ég byrjaði að svara á íslensku.. Byrjaði svo slowly að færast yfir í ensku.. Og endaði svo á ensku... OG ég gerði mér ENGA grein fyrir því að ég hafði skipt yfir..

Af hverju ætli maður geri þetta.. Eruð þið jafn slæm og ég?? eða er ég ekki ein?
Ég er ekki með litlar slettur inn á milli eins allir segja: Sjitt, fokk, damn og þetta..


Að ég tali nú ekki um spænskusletturnar sem ég er byrjuð að koma með..
eins og Que, donde, porque og svona minni orð..

Hvað ætli orsaki þetta? Sjónvarpsþættir?, áhugi minn á tungumálum? Hvað ég kunni ensku snemma sem barn? Why why why?

Og (aaah get ekki sagt neitt annað en btw hér.. hvernig segir maður það á íslensku?)
og by the way ég vandaði mig ROSALEGA mikið að setja engar slettur hérna í þetta blogg.. las lauslega yfir og held að ég hafi sloppið ágætlega;)

kv Nana the English Icelander

Endurnýjun bílprófs loks í höfn, fótbolti, skóli og workout!

18. september 2008 klukkan 23:19
Ákvað að taka eitt blogg fyrir sætu mínar í systrafélaginu.. Gengur ekki að þær bloggi allar en ekki ég.

Lífið mitt er svo sannarlega ekki eins spennandi og hjá Huldu sem er ein í Kaupmannahöfn og fer óhikandi um alla borg og bæi með allt sitt traust á gps tæki! eða Olgu sem fer í fjallaferðir, djassballet æfingar, kajak ferðir, klifur og ég veit ekki hvað og hvað ;) svo stolt af þessum útlendingum!;)

Fyrst og fremst vil ég þó hrósa sjálfri mér fyrir að LOKSINS vera búin að endurnýja ökuskírteinið mitt.
Eins og flestir vita þá fékk ég bílprófið í desember 2004 og fær maður þá bráðabirgðaskírteini sem þarf að endurnýja innan tveggja ára. 21. desember fer ég hress og kát í ökumat og ætla sko að vera aðal gellan í bænum með fullnaðarskírteini og fljót að afgreiða þetta.

En það gekk nú ekki svo vel. Ég beið með ökumatsblaðið í nokkrar vikur því ég ætlaði í Kringluna og taka nýja passamynd. Hin var alltof hræðileg fyrir gelgjuna Nönu...
Svo þegar ég loks ætla að fara ferð í Rvk og fá nýja passamynd og bruna svo með blaðið þá finnst það hvergi!! Við mamma leituðum um allt hús en blaðið fannst hvergi.

Ég pældi svo lítið í því þar sem að bráðabirgðaskírteini myndi alveg endast í ár í viðbót.
Svo líður árið..
og hvað gerist þá..
Nana finnur blaðið...
en nei, það var ekki nóg.. hún var ekki enn búin að fara í passamyndatökuna þannig að hún beið ENN lengur..

Það var svo fyrir þremur vikum að ég loks fór í nýtt ökumat(þar sem að hitt var útrunnið fyrir 3 árum) og nú kom annað bobb í bátinn.. Ég þurfti vottorð frá augnlækni þar sem að ég er með gleraugu!
En ég ætlaði nú ekki að fara í sama far og áður og hringi strax og panta tíma! Biðin var þó tvær vikur í þennan augnlækni og fór ég á mánudaginn síðasta.. LOKSINS eru pappírarnir í höfn og Nana litla loks komin með bílprófið aftur!

Ég var svo fúl út í sjálfa mig að hafa beðið með þetta BARA útaf passamynd að ég ákvað að hegna mér með því að hafa sömu gömlu ljótu myndina!! og ég get nú bara lifað með því! ;)


ég er svipað ljóshærð og þessi á ökuskírteininu!;)


En að öðru... Við Heiður komnar í gott átak! Ekkert brauð, ekkert snakk, engar franskar og ekkert svart gos fyrir Heiði..Nema einu sinni í mánuði.. Erum einnig byrjaðar í Sporthúsinu og ætlum að stefna að því að fara þangað 2-3svar í viku og svo erum við í boltanum 1-2svar í viku líka ;) Elska að vera komin aftur í gírinn.. Svo er það dansnámskeið vonandi á næstunni með systu ;)



Hérna erum við í Lez Jungle fótboltaliðinu.. Ekki svo segja að allar lesbíur séu trukkar!;) haha

Annars er spænskan komin á fullt og stefnir í alveg HELL október mánuð! próf og aftur próf, ritgerðir og fyrirlestrar .. en það er bara gaman ;) Maður skipurleggur sig bara vel og lærir með skemmtilegu fólki..


Þessi mynd er soldið ég þessa dagana;)

Annars er það bara Workout á laugardaginn.. wanna join? :P




Annars er þetta komið gott í kvöld.. Vinna á morgun frá 8-17 svo er það Mamma Mia Sing a Long með nokkrum hressum stelpum og svo kveðjupartý um kvöldið ;) stefnir í góða helgi!;)

Ætla að reyna að hafa fastan lið í blogginu hjá mér að mæla með einhverju.. Í þetta skiptið mæli ég með hljómsveit.. The Ting Tings! Lögin með þeim eru GEÐVEIK! Bæði róleg sem og danslög..
Mæli sérstalega með Traffic Light, That's not my name, Shut up and let me go, Great DJ og We Walk! ;)



Farið á youtube.com og skrifið The Ting Tings og That's not my name og gefið þeim séns! Bara töff!


Nana's out!

Last days

15. júlí 2008 klukkan 19:02
Þótt ég sé dauðþreytt og komin með upp í kok af tölvum vegna vinnu þá ákvað ég að blogga stutt fyrir Brynju frænku sem vanmetur mig sem bloggara. iss piss.. ;)

Frábær helgi að baki! Kósýheit í Garðinum alla helgina og afmæli hjá Eydísi á laugardeginum. Tvítug gellan :) Við skelltum okkur til hennar um hálf níu níu og ætluðum að vera rólegar en fjörið heltók okkur og þetta endaði í miklum dansi hjá mér og Svövu frænku hehe.. sem er til á video, hlakka ekki til að sjá það.. Tókum þróunardansinn sem er til á youtube. Þar sem að maðurinn tekur helstu dans "múvin" frá 1950 eða eitthvað og fram í nútímann.. Skrautlegt það haha;)



Svava var vel hress á því!;)

Eitthvað um 2 leytið(að ég held) var haldið niðrí bæ í Keflavík. Við Heiður hreinar meyjar hvað það varðar og var gaman að sjá skemmtanalífið í Kef..

ég gæti gert heila færslu um Sigurrós þetta kvöld en held ég sleppi því..;) hennar vegna hehe..

Kom mér samt á óvart eins og með H - Punktinn hvað stiginn var ógurlegur og staðurinn hátt uppi.. Hversu margir hafa dottið þarna niður ef þeir eru of ölvaðir?

Jón, Begga og ég being all dirty..

Svo trítluðum við yfir á Yello sem er bara ALLT öðruvísi en ég bjóst við.. Fannst hann bara ágætur ;) Eina sem var erfitt, þar sem að maður fer aldrei á djammið þarna, er að maður gat ekki labbað eitt skref án þess að þekkja manneskju, heilsa manneskju, knúsa manneskju og svo framvegis.. Held að ég velji frekar Rvk þar sem að maður getur verið með vinum en líka verið eins og hálfviti þar sem að fólkið þekkir mann ekki ;) Það var samt gaman að hitta gamla vini sem maður hefur ekki séð í mörg ár eða mánuði ;) Kíki þarna þó seinna við tækifæri...


Nancy og Drew.. haha

Annars er næst á dagskrá hjá mér, vinna eins og mofo, sléttun, fótbolti, gay pride, relaxing, school og fjör! Ætla að koma með heimspekilegt blogg næst! :P right!

lovssss... Nana

Hitt og þetta

02. júlí 2008 klukkan 21:32
Nóg að gera þessa dagana.. Ákvað að blogga smá og segja frá síðustu dögum hjá mér.. ;) 

Fór í sæta sumarbústaðinn minn um helgina. Langt síðan að ég hafði farið þangað... Fékk far með Árna og Huldu og Helga kom einnig með ;) Mættum svo á staðinn og græjuðum matinn ..
 Heiður var að fara í mót og ætlaði ekki að koma fyrr en á laugardeginum til mín þannig að ég keypti mér bara kartöflugratín og tvö engjaþykkni.. Þurfti ekkert á einhverju kjöt að halda en það var alltof mikið fussað og sveiað yfir mér og Árni og Hulda gáfu mér dýrindis svínakjöt mmm ;) síðan komu Olga og Sandra vinkona hennar og við skemmtum okkur vel ;)

Kvöldið var æðislegt og kósý og spiluðum við nýja Party og co og skemmtum okkur vel ;) Eftir miðnætti brá okkur öllum þegar skellt var hurðinni á bústaðnum. Hjartað á mér fór á fullt því ég hafði verið með í maganum allt kvöldið að ég hafði gleymt að læsa og gleymdi því alltaf. 
Svo lít ég í átt að ganginum og stekkur þar fram Heiður!! Ég öskraði(því mér brá) og fer svo til hennar og faðma hana! Svo kikkaði inn hvað ég var ánægð og ég fór að .. *hóst* gráta.. Ég saknaði hennar eitthvað svo mikið og ég hef aldrei verið í bústaðnum án hennar og vildi bara fá hana til mín og þetta surprise gerði mig svo innilega innilega glaða! Takk fyrir það sætan mín! ;* Ég elska hvað við getum hlegið mikið saman og haft gaman ! 




Svo á laugardeginum þurftu þau öll að fara að vinna, eða í brúðkaup og við Heiður höfðum það kósý á meðan.. Skelltum okkur rúnt á Selfoss og versluðum í matinn og smá gotterí.. Svo komu Helena, Thelma og Raquelita um 7 leytið.. Svo með kvöldinu bættist í gay fjöldann.. ;) Anna Lóa og Rakel mættu stuttu eftir hinum þremur.. Svo seinna kom Erla pirruð haha, Vala og Líf og við skemmtum okkur fram eftir nóttu ;)

Er mjög ánægð með helgina og gott að komast aðeins í burtu frá borginni  ;) 

Annars er búið að ganga vel hjá okkur Heiði með Lez Jungle síðuna. Höfum gert fótboltakvöld að vikulegum viðburði og mætingin er alltaf frábær!  Ætlum að selja boli með áletrun Lez Jungle sem að stelpurnar ætla að vera í í Gay Pride göngunni! Hlakka mega til!

En æj, alltaf enda ég á því að blogga um eitthvað sem ég ætlaði ekki að gera.. 

... ætti ég btw að fara að segja einhverjum frá blogginu svo að ég fái einhver komment? ;)

Smá sem ég þarf að koma út hérna í lokin, smá viska ;) : " Komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir koma fram við þig. Ekki ýta öllum frá þér því það er ekki víst að fólk vilji tala við þig aftur ef þú talar ekki við það lengur.. Maður á alltaf að reyna að rækta vinasambönd sama þótt að nýir hlutir geti hindrað það eða hægt á.. ..Ooooog bara njótið lífsins til fulls ! "


kv, 

Nana who is happy and satisfied with how she lives her life right now ! !! ;)

Blogg á sunnudagsnóttu

23. júní 2008 klukkan 01:40
Sit hér uppí rúmi andvaka á sunnudagskvöldi. Alein í húsinu. Heiður í Garðinum þar sem að vinnan hennar er á Suðurnesjum.. Er búin að njóta þess að hlusta á alls konar lög og finna ný.. japönsk lög, spænsk lög, tyrklensk, SIGN, Eurovision lög, jólalög, lellulög.. Tónlist getur gert svo gott fyrir mann!

En nei ég er augljóslega ekki ein í augnablikinu þar sem að konan á neðri hæðinni er að veita mér góðan félagsskap. Ég í mínu sakleysi ætla að reyna að sofna núna um eitt leytið og set einn Srcubs þátt á og kem mér fyrir með tölvuna við hliðina á mér, leggst á koddann og byrja strax að hlæja þar sem að þessir þættir eru snilld! Mínútu inn í þáttinn heyri ég einhver hljóð útum gluggann og ég hélt að það væru bara nágrannar að koma heim eða einhver að labba fyrir utan.. 
en það var bara þangað til að hiti færðist í leikinn sem ég hélt það..(Já ég er að tala um hita í leiknum sem er oft kallaður "kynlíf" )

 Fólkið á neðri hæðinni er þekkt fyrir að vekja okkur stelpurnar í íbúðinni kl ellefu á morgnana á sunnudögum og svo aftur kl eitt með miklum látum..  en ekkert heyrðist í morgun...Þau hafa greinilega breytt tíma sínum þennan sunnudag og eru í þessum töluðu orðum á fullu! augljóslega opinn glugginn hjá þeim og konan er ekki hljóðlát. 

Haha get ekki einu sinni klárað að skrifa þessar setningar þar sema ð kallinn greinilega fljótur að þessu.. þetta stóð í um 5 mínútur.. 

En þessi læti láta mig hugsa.. Gæti ég hringt í lögregluna núna og kvartað yfir hávaðanum þar sem að hún er eftir tíu og fólk farið að sofa? 
Lögreglan kom hingað um daginn vegna þess að nágranna kvörtuðu yfir því að það væru mikil læti hjá okkur. Þetta voru bara 6 manns og löggan hló þegar hún kom því þetta voru ekki læti fyrir fimmaura.

Þetta móment núna áðan voru álíka mikil læti og þetta kvöld okkar en það er munur á hlátrum og blaðri og svo stunum og rúmstokk að berjast við vegg. Ef ég ætti barn þá myndi það spurja mig: "Mamma, er allt í lagi með konuna á neðri hæðinni? hún er alltaf að öskra" 

Kannski að maður athugi viðbrögð lögreglu ef maður hringir og kvartar.. það er að segja ef að kallinn stendur sig lengur en 5 mínútur :P 

En jæja, Heiður er klst í burtu frá mér en nær samt að reka mig að sofa.. :)

Ætlaði svo innilega ekki að blogga um þetta en er búin að steingleyma hvað ég ætlaði að segja! 

Reyni að muna það og blogga síðar.. 

-Nana-

Ég er fötluð...

16. júní 2008 klukkan 19:52

Smá saga....
Mamma var að útskrifast úr Kennaraháskólanum! Er svo stolt af henni!

Missti af veislunni og athöfninni því ég var í flugvélinni á leið heim :(

Eða ætti ég að vera fegin?

Ónefndur nágranni okkar kom í veisluna og hann hefur verið góður vinur pabba í mörg ár. Konan hans og mamma eru einnig vinkonur og hafa þekkst lengi lengi.. (þetta gæti því verið hver sem er í götunni því allir þekkja alla)

Þessi ónefndi nágranni sem ég kýs að kalla hér Leðurfés mætti að sjálfsögðu og var í hörkustuði..
Hann og mamma fara eitthvað að chatta og töluðu um föstudagskvöldið því Palli var að spila í Garðinum í samkomuhúsinu. Leðurfés fór í þetta afmæli og fannst mjög gaman.

Mamma spyr hann: Já og fannst þér ekki geðveik stemmning þarna?
Leðurfés: Jú rosa gaman..
Mamma: og var Palli ekki æðislegur?
Leðurfés: Jújú.. fyrir utan það að hann er fatlaður..
Mamma: Fatlaður? hvað meinaru?
Leðurfés: Nú svona fólk eins og hann er bara fatlað.
Mamma: Svona fólk? ertu að meina að hann sé fatlaður af því að hann er hommi?
Leðurfés: Já, svona fólk er bara fatlað
Mamma: Ertu sem sagt að segja að dóttir mín sé fötluð??
Leðurfés: Já.. þetta er bara mín skoðun..
Mamma: (hún var orðin afar reið) Hvað myndir þú gera ef þetta væri barnið þitt? hvort værir þú til í að barnið þitt væri fatlað eða samkynhneigt?
Leðurfés: uuuuh uuuuh..

Mamma var orðin svo brjáluð en svo eyddust umræðurnar og þessi maður pirrar mig núna enn meira en hann gerði áður.. (sem ég hélt að væri ekki hægt).. Hann fór snemma heim...

Næst þegar ég labba út götuna og hann verður fyrir vegi mínum ætla ég að labba rosalega sætt og flott í mínum hælaskóm og pilsi.. og svo þegar nær dregur ætla ég að setja höndina í fatla og labba eins og ég sé fötluð.. Gefa honum svo illllllt look og labba svo sæt og fín áfram!

Leðurfés er fullkomið dæmi um fáfræði og hræðslu. Ég tek þetta ekkert inn á mig en finnst leiðinlegt að hann hafi sagt þetta straight in my mom's face! Mamma mín sem hefur verið svoooo yndisleg og opin með þetta allt saman..

Gleymi því aldrei þegar að ég kom heim með bækling frá samtökunum þar sem talað var um varnir í kynlífi og ýmsar kynlífsathafnir. Ég var eitthvað að lesa upp á meðan að hún var að græja sig fyrir djammið og segi henni frá "fisting" .. Ég útskýri hvernig það er og fyrst sem hún segir er: og gerir þú svona??

Það ber að nefna að önnur spurningin sem að mamma spurði mig þegar ég sagði henni að við Heiður Björk værum saman var: Og eruð þið búnar að gera það? æji hún er algjört yndi og ég gæti ekki ímyndað mér betri og töffaðri mömmu !!

eeeen að öðru.. ;)
Komin heim frá Orlando.. auðvitað tanaðri en andskotinn.. (NOT!!) og græt mig núna í svefn því ég vildi ekkert fara þaðan.. En bít á jaxlinn og nýt mín bara með 7 nýjum pörum af skóm, nýjum kjólum,pilsum og fullt af öðru skemmtilegu ;)

Annars er ég alveg að verða búin að vinna og fer þá að gera mig fína fyrir djammið.. við Heiður ætluðum út að borða í dag þar sem að það er 5 ára afmæli hja okkur eeeen ég þurfti að vinna svo lengi þannig að við ætlum bara að gefa okkur góða kvöldstund með sætum vinum og halda seinna upp á daginn ;)

Nana - farin að græja sig fyrir brottför :)

Orlando Orlando..

09. júní 2008 klukkan 19:29
Jæja þá er maður kominn í sunny Florida.. ;) 

Lentum í Boston um hálf sjö 4.júní og fórum á hilton hótelið.. Það var sweet! Fórum út að borða og höfðum það gott ;) 

Svo var vaknað um hálf fimm um nóttina og haldið til Orlando.. ;) 

Vorum komin í húsið um ellefu um morguninn og auðvitað var hoppað beint í laugina! ;)

FRÁBÆRT verður! 35 stiga hiti og sól allan tímann.
Förum út um hálf níu níu og erum allan daginn.;) 

Að sjálfsögðu er búið að fara í WalMart, Sam's, 2 lítil moll og fleira.. ;) 
Planið er svo að kíkja á Cocoa Beach, WetnWild og Florida Moll...

Annars er dagurinn í dag búinn að vera fínn.. þangað til um 15.. Við vorum í lauginni og ætluðum að fara að koma okkur uppúr og fara í Outletin og það var greinilega fullkomin tímasetning því þá byrjuðu þessar brjáluðu þrumur og eldingar.. Við auðvitað beint úr lauginni og kom þessi úrhellirigning.. 

Við erum auðvitað týpískir Íslendingar og sitjum úti á stólum og fylgjumst með eldingunum og þrumunum.. og svo kemur Heiður út til okkar og segir okkur fréttirnar.
.. neinei, var þetta ekki alvarlegur thunderstorm og við eigum að forðast glugga.. ekki fara út(við sem ætluðum í Outletin) og eigum að halda okkur á öruggum stað... 

á öllum sjónvarpsstöðvum stendur efst uppi eða neðst niðri neyðartilkynning þar sem að okkar sýsla eigi að bíða eftir frekari fréttum..megum ekkert gera fyrr en um korter í fjögur og þá kemur í ljós hvort að þetta verði ekki bara liðið hjá ;)

eeeeen.. best að hætta þá að blogga og standa upp af gólfinu og fara inn í stofu til hinna sem fylgjast betur með fréttunum en ég horfi á Ellen DeGeneres show inní herbergi ;) love it!! 

kv Nana sem getur líffræðilega ekki verið brún ;)

Orlando !

26. maí 2008 klukkan 18:22
Jæja, nú er maður að fara til Orlando 4. júní. Styttist óðum í þetta! um 8 dagar !!

Get ekki beðið eftir því að liggja í sólbaði, fara í garða, VERSLA FÖÖÖÖT og hafa það gott!;) Við stoppum í Boston og gistum á Hilton hóteli og herbergin þar eru æðisleg! Mun reyna að sofa sem minnst svo ég nýti allan þann tíma sem ég get þarna. Hef oft oft oft farið til Bandaríkjanna en aldrei til Orlando þannig að það verður spennandi að vita hvort það standi undir væntingum mínum :D



Þetta er sundlaugin við húsið sem við verðum í.. ;) Sama hús og Heiður og fjölskylda voru fyrir tveimur árum þannig að maður hefur séð myndir af akkúrat rétta húsinu :)

Annars er ég mjög hugsi núna.. Um fólk í kringum mann og hvað það segir á bakvið mann.. Sumir blaðra öllu og aðrir eru sannir vinir.. Sumir nota mann aðrir gefa til baka... sumir eru vinir, aðrir ekki... Sumir taka tillit til manns, aðrir ekki! 

Æji vil ekki vera leiðinleg.. er bara hugsi með sjálfri mér og ætla að halda því þannig  ;) 

Five things I'm excited about right now!! 

1. ORLANDO! - klárlega frábært frí fjarri öllu hér á landi!
2. Heiður klári prófin á miðvikudag og ég geti kúrað í hana eins mikið og ég vil!;)
3. JÓLABALL Í FOKKIN JÚNÍ!!;) - það er klárlega dream come true og mér finnst æðislegt að vita að ég er ekki ein sem að elska jólalög á sumrin í sól og blíðu!;)
4. Sumó með my Penisis!! Langt síðan ég hef djammað með Holgu (já stelpur þar sem að þið eruð með svo alltof lík nöfn þá hef ég ákeðið að kalla ykkur í heildina Holga! haha, Hulda/Olga/Helga ) ! :D Þetta verður í enda júní love it!
5. Sumó með the gay village! Hún verður í enda júlí í pínkulitlum sumarbústað en vonandi að maður lifi það af haha:)


Perrea Perrea! :D
* Nana *


Blogging again?

07. maí 2008 klukkan 17:53
Jæja þá, spurning hvort ég fari að blogga aftur. Það á eftir að vera frekar lítið að gera í vinnunni í sumar þar sem að flestir hafa það gott úti og pæla minna í símanum ;)


En ég hugsa málið en veit þó allavega lykilorðið og notendanafnið og svo kemur í ljós hvort ég taki ekki bara eðalbloggara  á þetta. :)

Hafið það gott!

xoxo Nana

Heyjan komin með blogg.....

19. september 2007 klukkan 11:55
Ég vil einnig benda á bloggið hennar Heiðar sem ætlar að vera dugleg í þessu í vetur...

heyjan.livejournal.com

Klukkan

Speki mín

26. apríl-2006 - *If you are what you eat, then all lesbians must be cunts.*


21. apríl-2006 - *Enginn er verri þótt hann sé perri;)*

Útskriftin mín !!!